miðvikudagur, mars 24, 2004

Hver ekur eins og..... 

....Anna á mjólkurbílnum, hún Anna "kvennagull" hí hí hí. Ok numero uno það er ekki mín sök að ég er ekki búin að skrifa neitt lengi, ég er bara búin að hafa öðrum hnöppum að hneppa og svo hafa aðrar tölvur en mínar eigin verið að stríða mér, þannig að ég hef tekið því sem skilaboðum að ofan um að ég eigi ekkert að láta nokkuð eftir mig liggja (ííúú´ðett sánds grós, en er alls ekki meint sem neitt viðurstyggilegt) En nú hefur engum tekist að tortíma verkum mínum og því held ég ótrauð áfram þó engin nenni víst að lesa þá finn ég mig enn knúna til að skrifa.
Ég og Vaka fórum, þegar ég var búin að vinna á krús kl 200 á aðfaranótt sunnudags, á smá rúnt. oh mí god oh mí god, þetta vaaar sko ekkert smá spennandi rúntur eða kvöld. Löggan var út um allt, slagsmál, frussandi brunahanar og óvarðir brunastigar...eitthvað lá svo sannarlega í loftinu. Mig hefur lengi langað að starfa sem gagnrýnir ýmis konar. Gagnrýna skemmtistaðina, veitingastaði ummm matur.... já jæja og jafnvel að gagnryna aðfarir lllöög neee annars ég þori það nú ekki en jú þetta hefur legni verið draumur minn. Getiði ýmindað ykkur leiðirnar sem þetta myndi opna fyrir mig? USS! það myndi sko borga sig fyrir ykkur öll að stttttttjjana við mig.
Annað má á dagsskrá sem fer sennilega fyrir brjóstið á mörgum...néé...þá er ég búin að sækja um stöðu mjólkurbílsstjóra :) ég fer smá rúnt á föstudaginn næsta. Spennandi. Þar með útiloka ég fyrir fullt og allt að ganga nokkurn tíma út. Ekki svo að misskilja að ég hefði nokkuð gert það án meiraprófs en nú get ég algerlega útilokað öll samband við hitt kynið nema vinnutengd. Þó er smá von um að samkynhneigðir karlmenn myndu sjá í mér einhverja glætu..... en nú verð ég að fara. fæ far með sláturbílnum á selfoss. vúbb dí dú...

|

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Afsökunarbeðni.... 

....eða eitthvað. samt leiðinlegt. Það á það til að birtast ekki allar eða jafnvel bara hálf grein...at all. Ef maður er duglegur að fikta eða flakka þá birtist hún eða maður getur skrollað hana niður. Efast um að það sé svo vinsælt að fólk nenni að leggja sig í líma bara til þess eins að lesa e-ð (undantekningar lítið) bull sem ég hef varið tíma í að skrifa, en það væri voða gaman :)
|

Hver og hver og vill og verður??? 

...má ekki svíkja verður að lofa? Nei þannig er mál með vexti að Lilja my beloved room-mate er að fara vinna í Freysnesi og mig fer að vanta nýjan roomie, fram á haust (allar hugmyndir vel þegnar).... ég hafði líka hugsað mér að fara í skóla í haust í Reykjavík, er með íbúð, vantar roomie (Ef þér lesandi kær finnst orðið roomie eða room-mate koma of oft fyrir í textanum, er það mjög líklega merki um dulda þörf hjá yður til að gerast slíkur. Og því bráðupplagt að hafa samband við mig) Samba room-mate svingó benju asbí roomie gotlen room-mate jef room-mate. Ha ha haaa ....WELL?
|

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Atvinnuleysi óskast! 

Dead boring! Flettið niður að næstu greinarskilum...
Sá á kvölina sem á völina. Seriosly hver velur það að vera atvinnulaus?!? Ég veit það er fólk sem bara fílar það. Ég er nú sjálf milli atvinna núna. Töluvert ekki atvinnulaus en væri til í að vera atvinnu minni. Verð samt að viðurkenna að vanþakklát vinna er betri en engin vinna...ekki það að ég hafi nokkurn tíma verið atvinnulaus sem slík. Með “vanþakklátri vinnu” á ég við flesta vinnu á hinum almenna vinnumarkaði. Vinna í leikskólum, skólum, þar sem ábyrgðin, vinnan og álagið er mikið en umbunin svipar til launa sem maður ímyndar sér að ómenntaðir skóburstara hafi haft seint á 18.öld. (eða sýnist sér hverjum) Ég geri mér ekki grein fyrir því hvað ég geti hugsað mér að mennta mig því það er allt svo flókið, vilt þú verða e-ð sem þú hefur áhuga á? –Já! Allt í lagi, mundu bara að þú munt aldrei eignast neitt... (ýkjur mínar ber ekki að taka alvarlega) Viltu verða rík/ur og eiga allt sem hugurinn girnist, eða meira svona lifa mannsæmandi lífi, samviskulaust og án meiriháttar áhyggja? –Já! Flott finndu þér e-ð leiðinlegt og erfitt að læra og stunda, lærðu það og stundaðu, vonandi hefurðu nógu gott orð á þér eða nógu góð samfélagstengsl til að geta komist að til að stunda vinnu þína. Ísland er svo saklaust og frábært land. Við íslendingar svo nægjusamir og sanngjarnir. Glaðir og hjálpsamir, kurteisir og góðir. Ohh nei!! Jú ég sýni landi mínu mikla aðdáun og þykir einstaklega mikið til þess koma, mér þykir vænt um það og er stolt af því. Íslendingar hins vegar... það er annað mál. Jú ég er íslendingur og hlýt því að falla undir skilgreininguna en það verður bara að hafa það í þágu málsstaðarins. Íslendingar sem þjóð virka á mig sem grunnhyggnir og yfirborðslegir, þeir lifa í svo mikilli afneitun að þeir munu sennilega ekki vakna úr henni fyrr en allt verður komið til fjan... ohh mæ god ég ætla að hætta þessu áður en að allir hætta að tala við mig... auðvita má ekki vekja máls á þessu umræðuefni og ætti ég svo sannarlega ekki að vera aðilinn sem gerir það því ég hef klárlega hvorki mátt né kunnáttu til að svara fyrir mig þess eðlis. Best að vera bara eins og hinir.

Hello, hello! Where is Tóta? Ok, ég viðurkenni að ég hef ekki beinlinis reynt að hafa samband við hana en ég á líka alltaf von á að hún hringi í mig einn góðan klukkutíma og láti dæluna ganga (Orðatiltæki sem oft er notað í mínu tilviki, ekki móðgast) ég var að láta mér detta í hug hvort hún væri komin með kærasta fyrir austan. Jafnvel e-n breskan, kannski leikara? KANNSKI MR. CANE. Yees hello, Jeeves I need to speak to Tota pleace. Yes and say hello to mr. Cane from me. Ætli Tóta og mr.Cane séu að stunda dýrslegt ástarsamband við Jökulsárlónið í faðmi Íslenskrar náttúru. Eða ætli samband þeirra sé ekki komið á það stig? Hún er með hann í sidesine-tours um austurlandi og daðri við hann líkt og hún hafi aldrei daðrað fyrr. Noti hvert tækifæri til að láta brjóst sín snerta eyrun hans og láti algjörlega óvart hendur sínar srtjúka þjóhnappa hans. Heyrðu ég held kannski bara áfram með þennan sora í huga einhvers annars.........
kveðja, Anna Sigga

|

oss mí goss 

Há imbarassíng... töluvert ekkert búin að vera sinna þessu en það fer að verða breyting á því. Ég er búin að vera svo bissí að ég hef ekki haft tíma til að þrífa mig hvað þá að vera skrifa e-r fréttir af hreinlætisleysi mínu. Nei ég er nú bara að reyna útskýra tímaleysi mitt en eru það nú vægast sagt ýkjur að segja að ég hafi ekki komist í bað sökum þess en sjáum hvað setur.....

kveðja í bili, Anna Sigga

sí ja, Drekinn
|

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Til þín elsku Gulli! 

Djöfuls meiriháttar kjaftæði í honum Guðlaugi “vini” mínum. Ég var að lesa bloggið hans um reunionið og í alvöru talað, ég fór næstum því að skæla. Helvítis ruglið og bullið stundum í honum Gulla getur stundum ært úr manni líftóruna. Hann dirfist til að skrifa um að mætingin á reunionið hafi verið honum að þakka, hann hafi haft upp á fólkinu og látið það vita, og hversu lítið beisin dagsskráin hjá skemmtinefndinni hafi verið. Fyrirgefið þennan saklausa misskilning í honum Guðlaugi en ég persónulega hafði uppá ÖLLUM sem við vissum ekki númerið hjá og sendi honum listann með upplýsingum. Skemmtinefndinni (hana skipuðu ég, Vaka og Lilja) til varnaðar vil ég segja og skrifa: Gulli! Þú komst 2 ½ tímum eftir að endurfundirnir/bekkjarmótið/reunionið eða hvern djö...þú vilt kalla það, byrjaði og hvað veist þú um hvað við vorum að gera áður en að þú komst, 500 krónurnar voru ekki fyrir e-u heimabruggi heldur fyrir það að þurfa ekki að sitja úti í þessari grenjandi rigningu, við gátum ekki einu sinni fengið alla til að borga, by the way, borgaðir þú? Ég veit heldur ekki til þess að við þurfum e-r ice-breaking leiki til að hafa eðlileg og jafnvel hressileg samskipti við fyrverandi bekkjafélaga og vini, hefði það verið betra fyrir þig? (Það hata líka allir svoleiðis heimskulega leiki, sérstaklega þar sem þeirra er ekki þörf.) Ef þú finnur aftur þessa þörf hjá þér að rakka niður eða hæðast að því sem ég hef gert eða geri, hugsaðu þá málið.

Ef þú ræður ekki við þetta án þess að fara í fýlu, ræðurðu ekki við neitt. Ræðurðu við það!?!
Kveðja,
Anna Sigga

|

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Önnur tíð 

Um daginn, eftir “örlagaríkt” kráarrölt, fór ég með Gulla og Önnu upp í Búrfell og gisti þar. Anna er að vinna í eldhúsinu í Eiríksbúð og Gulli er að vinna í Þjóðveldisbænum. Anna Margrét bauð mér að koma þarna í hádegismat. Inga frænka og Margrét Öxnevad voru þar líka og Erla frá Minna-Núpi, höfðu þessar fjórar góðu konur útbúið hangikjet og með öllu tilheyrandi, jafning, baunir, rófustöppu, kartöflur og kartöflu- og eplasalat. Búðingur var svo í eftirmat með þeyttum rjóma.
Ég minntist þess hversu ég sakna þess að vera þarna (þá er ég ekki bara að meina matarlega séð). Auðvita var örugglega miklu skemmtilegra að hérna í Fellinu þegar mannskapur var meiri en alltaf hefur staðurinn og fólkið ákveðinn sjarma þó hér hafi ekki verið nema örfáar hræður . Að hitta allt þetta fólk sem mér þykir svo mikið til koma þó auðvita séu e-r hér sem ég ekki þoli. Að sjá alla þessa unglinga og minnast þess hve gaman var þegar ég og Anna Margrét byrjuðum að vinna hérna, þó okkur finnist þau óttaleg börn vorum við sennilega ekki mikið fullorðinslegri á þeim tíma. Ekki minnist ég þess að svona mikið hefði verið um þessa hormónalykt sem virðist liggja hér í lofti nú. En kannski er það eitthvað sem allir eru bara að reyna að gleyma.

|

Leikur, afmæli, endurfundir en umfram allt,leiðindi. 

Laugardagurinn 12.júlí byrjaði vonum framar, öll fjölskyldan var heima í sveitinni, að Sævari frátöldum, var í garðvinnu og borðaði saman góðan mat. Valdimar yngri hélt manni kátum yfir matseldinni enda skemmtilega hress og klár strákur. Við borðuðum Mexíkanskan mat og borðuðum vel og lengi, svo ég tali nú allavega fyrir mig.

Um 1700 fór ég svo með bræðrum mínum niður í Árnes á hinn umtalaða leik, Ástríks p.sv og Biskups. Leiknum seinkaði um allnokkra stund, sökum vöntunnar á leikmönnum Biskups og illa gekk að redda dómara og línuverði, þó það hefði átt að vera löngu leystur hnútur. (Svo virðist sem það sé kveimlegt vandamál því ég hef ekki öðruvísi farið á leik án þess að dómara- eða línuvarðarskortur geri vart við sig, virðist mér einnig sem það sé fremur óvinsælt starf) Ég og Eiríkur skiptum með okkur starfi línuvarðar sem ásamt Friðjóni Ella og e-m fleirum. (Eða ég var fengin í það svona rétt á meðan Eiríkur sæi um skiptingar inná, þó mér sé næu ekkert um það gefið að redda honum e-ð með það sem ég get alveg gert sjál, sem aðstoðarþjálfari og svoleiðis en hann átti víst afmæli þannig að við skulum kalla þetta afmælisgjöf til hans. Cheap ass Anna Sigga!)

Þegar leikurinn var svona í þann mund að hefjast komu elskurnar mínar, þær Vaka og Lilja, á leikinn. Ég, Eiki, Lilja og Vaka gerðum okkur öll “dagamun” og fengum okkur bjór yfir leiknum og vorum ekkert óþarflega alvörugefin yfir þessu, enda Biskupsmenn sjálfir við fimmta bjór. Leikurinn komst þrátt fyri það í 1-0 Biskup í vil en eftir það gekk þeim ekki neitt, þrátt fyrir að einn félagi okkar Ástríksmanna, Bjarni nokkur Haraldsson frá Mástungu, væri þeirra auðmjúki dómari, þeirra Biskupsmanna vel að merkja. Leikurinn leið og fór að lokum 2-7 fyir sjálfum heimamönnum jafnvel þó eitt markanna hefði verið dæmt af þeim hafði Ástríkur unnið stórsigur á nágrönnum sínum úr Bláskógarbyggðinni. Villi skoraði 3 mörk, Einar Kári 2, Jói bró 1 og Árni þór eða Þórður Freyr 1 það er ekki alveg vitað.

Að leik loknum hafði ringt í allnokkurn tíma og allir orðnir rennandiblautir en strákarnir létu það ekkert á sig fá og fögnuðu sjálfum sér fyrir góðan leik og þökkuðu piltunum úr hinu liðinu fyrir leikinn. Það var mikil gleði í hjörtum þeirra og þeir allir til í að gera sér e-ð til skemmtunnar og hefði átt að taka stefnuna á Árnespubbinn en hann reyndist þeim lokaður sökum yfirgengisseminnar í þeim upparlegu Kanarífélögum sem skemmta þar sjálfum sér árlega. (Ekki er ætlunina að ráðast á þetta fólk persónulega, heldur þarf þetta að hljóma svoldið eins og reynt hafi verið að bera sig eftir því að fá að vera þar inni en ég held að ég hafi sagt að það væri ekki möguleiki því ég hafði áttað mig á því að ég hefði ekki getað verið með því ég átti að vera farinn annað. Hvít lygi :o) Moi, ce fauxer ) Ég stakk bara upp á því að þeir myndu bara koma á Útlagann um kveldið og skemmta þar. Gat e-ð haft með það að gera að stefna okkar á “endurfundinum” væri þangað?

Við brunuðum af stað þrjár af fjórum úr “endurfundar”nefninni og vorum ákaft stressaðar því athyggli okkar hafði verið beint að því að ekki hefði öllum verið gert kunnugt um að endurfundir stæðu til fyrr en kvöldinu áður og vorum við einnig búnar að heyra að gamlir bekkjarfélagar sæju sér ekki fært að mæta eða skildu hreinlega ekki skilaboðin sem þeim höfðu borist. Ekki hjálpaði beljandi rigningin til, þar sem áætlað hafði verið að hittast utandyra, en okkur barst á leiðinni hjálp frá litlum engli. Hún Freyja Þ okkar reddaði okkur sal þar sem við fengum að vera til miðnættis.

Að hitta vini sína eftir 6 ár.... ótrúleg tilfinning. Við vorum ekkert feimin hvert við annað og töluðum og töluðum, sungum og Frikki spilaði á gítar. Við vorum einhvern veginn öll vinir. Ólíkt því sem áður var :o( Enda náttúrulega ekki allir mættir. Mjög athygglisverð staðreynd: Þeir sem ég gleymdi að skrifa þegar ég var að rifja upp hverjir hefðu verið í bekk með mér, þeir komu víst ekki, nema Steini. Afar athygglisvert. Why? Why, I ask me ? Why? Bara vangaveltur. Það var allavega mjög góð mæting og afar skemmtilegt. Ég og Rúnar vorum alveg á mörkunum að vera ekki farin að virkilega rífast og við sem fyrstar mættum, ég, lilja og Vaka misstum okkur í upprifjunum og minningum við hana Ásu okkar, yndislegu Ásu sem í dag á svo ljómandi vel við félagsskap trillanna þriggja. Við fórum svo öll á Útlagann og skemmtum okkur eins og konungar, en það var galli á gjöf jarðar, við vörðum ekki nógum tíma saman fjarri þeim sem komu okkur ekki við og fengum við auðvita ekkert næði til að tala um gamla daga á Laganum. Ég áttaði mig líka á því að gamlar ástir kvikna við gamlar kringumstæður. Og gömul öfundsýki sömuleiðis....eða þannig. Strákarnir höfðu löngum verið skotnir í henni Freyju F okkar og þó ég elski hana get ég vel verið abbó útí hana. :o/ Ég vil benda á að það hefur ekkert með neinar pesónur að gera, bara aðsæður. Þegar fólk er hætt að veita manni óverðskuldaða athyggli verður maður fúll, bara það að Ása fór með þessum á barinn en ekki mér, bara að Egill settist hjá Lilju en ekki mér, bara að Lilja fór á klóið með hinum en ekki mér, gerði mig pirraða og fúla og ég hreinlega nennti þessu ekki lengur. Ég ákvað því óbeint að vera í vondu skapi og hætta að reyna að skemmta mér eingöngu vegna þess að fólk var ekki að haga sér eftir mínu höfði og auðvita líka útaf því að enginn úr fótboltaliðinu kom, nema Eiki sem er flott GO EIKI, en þú varst bara upptekinn í örmum væmninnar. Ég er Anna Frekja og mér er andsk.... sama hvað öðrum finnst.


Kveðja,
Moi, ca freka.

|

föstudagur, júlí 11, 2003

Marin og blá- en alveg þess virði 

Í gærkvöldi fór ég með Jóa og Nonna, bræðrum mínum, á fótboltaæfingar. (þess má geta að þegar ég var á gagnfræðiskólaárunum´, æfði ég með sveitastrákunum tvisvar í viku og missti helst ekki úr æfingu og var það fyrir þann tíma er bræður mínir fóru að mæta) Allavega þá fæ ég að fylgja með í þetta sinn og það sem meira er, fæ að vera með. Þetta er um klukkan 20:00 í gærkveldi en ólíkt því sem áður var, eru ekki lengur teknar pásur heldur leikurinn keyrður áfram á öðru hundraðinu og ekki stoppað fyrr en e-r strákanna kastar upp blóði (ég var semsagt byrjuð að kasta upp blóði eftir að 2o mínútur voru búnar en þeir eru svo óvanir að hafa mig með að þeir taka ekki þannig tillit til mín, enda hvurn djö.... var ég líka að mæta ef ég hafði EKKERT roð í þá... herm herm ég hafði ekkert í þá en samt) ég veit ekki fyrr en við erum sest inná Árnespub í bjór nema föken Sigríður fékk sér bara stórt bjórglas af vatni, "sötr sötr sötr sötr" og er þá klukkan orðin rúmlega 22:00, 22:OO, tæpa tvo helv...tíma vorum við á hlaupum, fram og til baka stóra völlinn, og ég með strákum í svoleiðis miklu betra formi en ég að samanburðurinn á hlébarða og snigli nær ekki alveg að mála nógu sterka mynd af samanburðinum á mér annars vegar og strákunum hins vegar. Að öðru leiti en úthaldsleysi mínu og nærveru bræðra minna og 15-20 kólóum aukalega, minnti þetta óneitanlega á þá tíma sem ég varði flestum mínum stundum með þessum strákum (vantar reyndar nokkra og hinum er ofaukið), hversu gaman mér fannst að hanga með þeim, strákunum sem voru meira að segja (og eru) eldri en ég og nenntu samt að hafa mig með. Villi, Steinn og Ingvar, kannski Eiki....ok það voru semsagt ekki fleiri mættir af "gamla genginu" en þeir, og ég væli bara um hvað það hafi verið gaman að hanga með þeim ÖLLUM aftur. En jæja... my mistake.

Allt þetta, áhugi minn á að æfa og stunda fótbolta, áhugi minn á bílum, jeppum fólksbílum, vörubílum jafnvel, varð til þess að ég sagði, við mömmu eftir æfinguna þegar ég var að hengja upp þvott (kaldhæðni), að ég vildi óska að ég hefði fæðst strákur. Svipurinn á henni móður minni, gott ef hún tók ekki þessum ummælum mínum sem að ég væri að reyna smeygja mér útúr skápnum, án þess að helst nokkur tæki eftir því, og ég væri svona pent að gefa í skyn að hún ætti nú að fara að reyna koma mér saman við einhverja lesbíska dóttur vinkonu sinnar........ Andsk... nei, jú vissulega hljómar þetta ekki vel sé þetta slitið og tætt úr samhengi, en auðvita var meining mín sú að ég ætti mikla samleið með strákum og hafði gaman af félagskap þeirra en þeir tækju mér ekki eins vel eins og þeir myndu gera ef ég væri þeirra kyns.

Ég ætti jafnvel enn betur með að skilja þá og taka þátt í því sem þeir eru að segja ef þeir virkilega tækju mark á mér, þetta á auðvita við þegar þeir eru í stórum hópum og þora ekki að hlusta á mig, strákanna vegna, útaf því að ég er stelpa og þegar þeir hrósa manni inni á vellinum, passa þeir sig að þeir hljómi yfirlætislegir svo hinir haldi ekki að þeir séu að meina það, þá bregst ég við þeim athugasemdum með því að það komi sér stundum vel að vera feitur því þá eigi boltinn ekki eins greiðan aðgang fram hjá manni, þegar ég meina auðvita, "hafðu þetta auminginn þinn, passaðu þig bara að vera ekki fyrir þegar ég er í vörn!" en hitt hljómar betur einhverja hluta vegna í svona strákahóp (það hentar mér ekki að opinbera sjálfsálit mitt)

EN þetta eru góðir strákar allir og ég óska þeim alls hins besta í leiknum á morgun, enda er ég nottlega aðstoðarþjálfari liðsins, vonandi gleyma þeir því ekki að ég er ekki með til að redda þeim í vörninni ;o)

-Gangi ykkur vel strákar-
Sjáumst á leiknum.
Anna Sigga
|

fimmtudagur, júlí 10, 2003

Hótel Brjánsstaðir 

Af því er ekki að spyrja að ég, Anna Margrét, Gulli og Eiki fórum á pubbinn á Hótel Brjáns. Ég verð að segja að þetta er mjög smekklegur staður og allt með besta móti en.... það er alltaf þetta en...fyrir minn smekk er þetta hálfgerður plebbapöbb, koníaksstofa ef við viljum gefa því eitthvert nafn. Fínt sem slík, en staður þar sem maður lepur bjórinn sinn beint úr krananum...ég held ekki.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?